[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Ljósaundarlegheit

2004-12-19 20:21
OK, þetta var einum of skrítið.

Ég var í sakleysi mínu að sópa kringum rúmið inní svefnherbergi, þegar ég rak kústinn í einn af litlu halógen kösturunum á veggnum. Það heyrðist lítið "plink" og skyndilega var orðið miklu bjartara í herberginu. Peran sem ég rakst í tvíefldist við höggið og baðar nú rúmið mitt með þvílíkri birtu að annað eins hefur aldrei sést.

Ég er hinsvegar orðinn hálf blindaður af því að horfa í ljósið og furða mig á þessu öllu saman. Ætli höggið hafi "uppfært" peruna úr 40W í 80W eða eitthvað?

Er þetta ekki öfugt við það sem á að gerast þegar ljósaperur verða fyrir höggi?

Ég yrði reyndar ekki hissa ef þetta styttir líftíma perunnar eða verður jafnvel til þess að skemma spennubreyti kastaranna. Ef einhver lesandi er sérfróður um ljósaperur þá má sá hinn sami endilega "upplýsa" mig.

Í ótengdum raftækjafréttum lagaði ég loftljósið í eldhúsinu með því að toga laust í það (húrra fyrir sambandsleysi!) og sópaði fjarstýringunni sem er búin að vera týnd í hálft ár undan sófanum.

     Re: Ljósaundarlegheit (Ísak Jóhannsson)
         Re: Re: Ljósaundarlegheit (Anonymous)
     Re: Ljósaundarlegheit (Iðunn)
     Re: Ljósaundarlegheit (Árdís)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni