[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Málfræðinördismi: Að finnast

2004-12-07 21:40
Mér finndist eðlilegt að skrifa "mér fyndist" svona, ef ekki væri vegna Grímu sem sagði mér áðan að skrifa "mér finndist" með einföldu. Þetta fannst mér nokkuð merkilegt, því þetta er fyrsta i/y stafsetningarvillan sem mér er bent á að ég geri reglulega.

Ég gat líka réttlætt þetta með því að benda á að rétt væri að "mér hefði fundist eitthvað", og "fundist" yrði "fyndist" með einföldu u-y hljóðvarpi. Ég veit hinsvegar ekkert hvort ég sé að hljóðvarpa réttri mynd sagnarinnar, því það er svo langt síðan ég lærði um þessa hluti.

Lýðurinn og Internetið eru reyndar ósammála Grímu. Ég gerði mér til skemmtunar algjörlega ómarktæka Google-skoðanakönnun:

Einnig kannast Vefpúkinn ekki við orðið "finndist", en samþykkir "fyndist" athugasemdalaust.

Mér skilst að Orðabók Menningarsjóðs styðji hinsvegar Grímu og Google leiddi í ljós að Már vinur minn skrifar líka "mér finndist".

Hvað er þá rétt?

Ég hallast að því að taka frekar mark á Grímu, Má og Orðabókinni heldur en lýðnum og Vefpúkanum. Vonandi verður Friðrik yfirmaðurinn minn (og höfundur Púkans) ekkert fúll yfir því. ;-)

Ef einhver lesandi er nógu sleipur í fræðum beyginga og hljóðvarpa, þá væri mjög gaman að fá útskýringu á því af hverju annað er rétt og hitt ekki.

     Re: Málfræðinördismi: Að f.. (Heiða)
     Re: Málfræðinördismi: Að f.. (Haukur Þorg..)
         Re: Re: Málfræðinördismi: .. (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Málfræðinördis.. (Haukur Þorg..)
             Re: Re: Re: Málfræðinördis.. (e)
                 Re: Re: Re: Re: Málfræðinö.. (Haukur Þorg..)
                     Re: Re: Re: Re: Re: Málfræ.. (Már Örlygsson)
                         Re: Re: Re: Re: Re: Re: Má.. (Bjarni Rúnar)
                             Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re.. (Lora)
     Re: Málfræðinördismi: Að f.. (Bragi)
     Re: Málfræðinördismi: Að f.. (Borgar)
         Re: Re: Málfræðinördismi: .. (Bjarni Rúnar)
     Re: Málfræðinördismi: Að f.. (Ragnar)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni