[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Góður dagur

2004-11-18 22:28
Í morgun vaknaði ég allt of snemma (fyrir átta), en til að valda ekki skelfingu og ringulreið í vinnunni tók ég því bara rólega heima til rúmlega tíu. Ég notaði tímann til að prófa SuSE backup tólið, elda og borða góðan morgunmat og hlusta á Police, Primus og David Bowie.

SuSE backup tólið lofaði góðu, ég mun kannski gefa því endanlegan dóm aðeins seinna. Ég stefni að því að láta Evu (fartölvuna mína) afrita sig einusinni í viku yfir á stofuvélina, án neinna afskipta frá mér.

Police, Primus og David Bowie eru snillingar.

Þegar klukkan var farin að ganga ellefu frétti ég að það væri bara samt komin af stað skelfing og ringulreið inní vinnu. Ég tölti því þangað til að róa lýðinn.

Seinna um daginn skrapp ég í smá göngutúr og keypti mér pulsu með öllu nema remúlaði, miðungs trópí, nál og tvinna. Og linsur, því mig vantaði ekki lengur kaffi.

Ég er líka búinn að vera gífurlega duglegur í vinnunni í dag og Perl meðmæli dagsins er: PMilter, a pure-Perl Milter implementation. Snilldardót.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni