|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst gaman að skilja eftir fótspor og veita fótsporum annarra athygli. Gaman að velta fyrir mér hver hefði átt svona ofboðslega litla fætur og labbað alein eftir Njálsgötunni í nótt, um tvöleytið. Það var ekki langt á milli sporanna, hún hefur ekki verið að flýta sér.
Nýfallni snjórinn er voða fallegur.
Sérstaklega þegar maður á ekki bíl og þarf ekki að labba nema 300 metra til að komast í og úr vinnu...