|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst að bæta eigi kjör kennara. Almennilega.
Mér finnst að Þórólfur eigi að segja af sér, en ég vil samt aðallega sjá fyrrum stjórnendur olíufélaganna dæmda.
Mér finnst asnalegt að Íslendingar skuli sinna hermennsku í Afganistan á vegum íslenska ríkisins. Ég hef verið stoltur af því að búa í hlutlausu, herlausu landi og finnst miður að Ísland virðist ekki vera það lengur.
Mér finnst merkilegt að Sony Discman græjan mín skuli hafa orðið 10 ára gömul í sumar, en virki samt fullkomnlega enn.
Mér finnst gaman að vera loks búinn að endurheimta mynda- og mp3-söfnin mín af öryggisafritum.
Mér finnst SuSE Linux 9.1 helvíti flott kerfi. Það keyrir vel á nýju Compaq Evo N410c fartölvunni minni. Nýja tölvan mín er falleg.
Mér finnst USB frábær tækni. ADSL líka. Og þráðlaus net!
Mér finnst gaman að hafa klárað í nótt að útbúa mitt eigið "live-CD" kerfi (Linux sem ræsir og keyrir alfarið af geisladiski), fyrir vinnuna. Það var merkilega einfalt, en tímafrekt í útfærslu því "brenna, prófa, laga" ferlið tók svo langan tíma.
Mér finnst gaman í vinnunni minni.
Mér finnst Firefox vera ágætis vafri, en mér finnst hann hægari en Konqueror (KDE vafrinn). Ef einhver kann að láta Konqueror sem fylgir SuSE 9.1 hætta að frjósa þegar maður slær íslenska broddstafi inn í vef-eyðublöð, þá má sá hinn sami endilega hafa samband.
Loks eitt sem mér finnst ekki, en er bara: Þeir SuSE 9.1 notendur sem vilja kenna YaST2 að þekkja íslensku geta gert það með því að afrita þessa skrá inn í möppuna /usr/share/YaST2/data. Athugið að taka öryggisafrit af skránni sem er þar fyrir, ef mín skyldi ekki virka.