|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Niðurstaða mælinganna var sú að sjónin mín virðist hafa batnað um á bilinu 0.25 til 0.5 síðan ég var mældur síðast. Það kom mér á óvart.
Ætli þetta sé merki um að aldurinn sé að færast yfir og að ég sé að byrja að verða fjarsýnn? Nærsýnin að leiðréttast sem því nemur?
Hmm...!
Sem betur fer fékk ég það staðfest enn einusinni nú um helgina að ég líti út fyrir að vera 23ja. Það var annars gaman að því að daman sem hélt það var sjálf 29, en ég hafði giskað á 22.
Uppfært 2004.10.29: Ýmsar leiðréttingar. Í fyrsta lagi, þá er ég ekkert viss um að Helmut Kreidler hafi neitt með þessa búð að gera... hún heitir bara "Sjón". Í öðru lagi var ég mældur eitthvað vitlaust og sjónin mín hefur versnað smá, ekki batnað, svo ég er ekkert að verða fjarsýnn þrátt fyrir allt. Vei! Í þriðja lagi er ég afskaplega sáttur við að hafa fengið leiðrétta mælingu og nýtt gler samdægurs og mér að kostnaðarlausu. Hreint ágætis fólk í þessari verslun. :-)