|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Að djöggla (gegla?) er þjóðaríþrótt okkar *nix-nördanna í FRISK. Við erum flestir að fikta við þetta og hvetjum hina til að spreyta sig. Það eru því allmargir marglitaðir boltar sem boppa hér upp og niður í tíma og ótíma.
Ég er búinn að ná þeirri leikni að geta djögglað (þremur boltum) og lesið bloggsíður, fréttir eða kóða á sama tíma.
Ég þarf hinsvegar að taka pásur til að fletta eða skrifa eitthvað sjálfur...
Ég er að íhuga að koma með kylfurnar sem ég á heima í vinnuna, en veit ekki alveg hvort það er ráðlegt sökum slysahættu og lítillar lofthæðar.
Uppfært 2004-10-21: Ég mætti með kylfurnar í dag, mun betra að hafa þær hér en í geymslunni heima. Hér er búið að vera stórhættulegt og hávaðasamt alveg síðan. Mjög gaman! ;-)