[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Prodigy? Eða ekki Prodigy?

2004-10-14 23:28
Prodigy tónleikar á morgun?

Ég hef enn ekki heyrt frá Kisa punktur is varðandi miðana mína. Ég hringdi í fyrradag í skrifstofusímann þeirra og fékk að heyra tvennskonar hringitóna, klikk og dauft suð. Enga rödd til að tala við. Gunnar lenti í því sama. Samkvæmt heimabankanum hefur ekki verið tekið af kortinu mínu fyrir miðanum.

Ekkert sérlega traustvekjandi. Þetta hlýtur nú samt að leysast á morgun - annars fer ég að hringja beint í gemsa ábyrgðarmanna og vera óþolandi.

En miðarugl er því miður ekki eina babbið í bátnum.

Ég er enn kvefaður. Ég hélt í dag að ég væri að verða nokkuð góður, ákvað að leyfa mér að rölta með jakkafötin mín í hreinsun svo ég yrði undirbúinn undir árshátíð vinnunnar á laugardaginn. Rétt eftir að ég kom heim aftur varð ég skyndilega svo máttfarinn þar sem ég sat í eldhúsinu að enni og eldhúsborð áttu vandræðalega langdregin og náin kynni.

Ég bösta engin feit múv á neinum dansgólfum svona! Í besta falli dett ég hressilega á fólk og gubba.

Mér lýst ekki nógu vel á þetta allt saman.

:-(

Uppfært 2004.10.15: Jæja, miðamál komin á hreint - Kisi týndi auðvitað pöntuninni minni en það er búið að redda því núna. Ég er að þykjast vera nógu frískur til að geta farið á tónleika. Mætti í vinnu og allt...

Viðbót: Þeir klúðruðu reddingunni. Nú þarf ég að láta sjá mig niðrí Laugardalshöll fyrir sex ef mig langar á tónleikana. Fávitar!!

     Re: Prodigy? Eða ekki Prodigy? (Borgar)
     Pilluáminningin (Björn Friðgeir)
         Re: Pilluáminningin (JBJ)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni