[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Ábyrgðarlaus skrif

2004-10-12 23:09
Ég er að senda þér góða strauma.
Sjáðu.
Þeir eru hér.
A glámbekk.
Fyrir allra augum.

Jafnvel þó þeir væru ekki til þín,
heldur til einhvers annars.
Þá mættirðu bara samt
alveg taka þá til þín.
Ef þú vildir.

Með einu skilyrði þó.

Ekki láta mig vita,
ef þeir eru ekki þér að skapi.
Því þá mun ég neyðast,
algjörlega gegn vilja mínum,
til að segja þér svolítið.

Ég mun neyðast til að sannfæra þig um
að þessir straumar á glámbekk
hafi verið ætlaðir öðrum.
Hverjum sem er öðrum,
sem kynni að meta þá.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni