[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Ég er víst gamall! Víst!

2004-09-28 23:30
Fyrir sirka mánuði giskaði útlensk stelpa á að ég væri 23ja ára gamall.

Rétt áðan hváði 23ja ára gamall Kólumbískur strákur þegar ég sagði honum hvað ég væri gamall; hann var sannfærður um að ég hlyti að vera nokkru yngri en hann.

Í sumar á Hróarskeldu giskaði mjög full íslensk stelpa á að ég væri 19 ára.

Fólk er líka alltaf að spyrja mig hvað ég sé að læra. Svo kemur svona efasemdasvipur á það þegar ég segist eiginlega vera löngu útskrifaður úr Háskólanum og vinnandi sem sérfræðingur við hugbúnaðargerð. Sem betur fer er fólk yfirleitt of kurteist til að saka mig upphátt um að vera bara að plata þegar ég svo segist eiga íbúð og vera nýlega fráskilinn í örvæntingafullri tilraun til að hljóma fullorðinslega...

Ef ég væri orðinn gamall og hefði áhyggjur af aldrinum, þá þætti mér þetta eflaust frábært. En kommon, ég er bara 28! Varla nógu gamall til að njóta virðingar sem fullorðinn, fullgildur samfélagsþegn. Það eru enn mörg ár í að ég geti boðið mig fram til forseta!

Ég veit hreinlega ekki hvort ég má við því að líta út fyrir að vera 20-25% yngri en ég er. Það er líklega eins gott að ég er farinn að titla mig Herra BRE á Intervefnum, annars tæki örugglega enginn neitt mark á mér nokkurntímann...

Kannski ætti ég að fara að ganga með hatt. Og staf.

     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Einar Örn)
         Re: Re: Ég er víst gamall!.. (Katrín)
     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Ágúst)
     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Fía)
     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Jósi)
     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Svansson.net)
     Re: Ég er víst gamall! Víst! (Pulla)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni