|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Það fór ekki betur en svo að ég las heila bók, spjaldanna á milli og sofnaði ekki fyrr en um fjögurleytið. Úps...
Bókin sem ég las heitir Childhood's End, eftir Arthur C. Clarke, útgefin 1953. Mér fannst hún mjög vel skrifuð og grípandi.
Mér finnst reyndar rosalega gaman að lesa svona gamlar vísindaskáldsögur, því þær varpa oft áhugaverðu ljósi á hvernig fólk taldi líklegt (eða mögulegt) að framtíðin myndi þróast vegna tæknibreytinga. Stundum komust menn nærri sannleikanum, stundum ekki.
Gullmolinn í þessari bók (að mínu mati) var þegar Clarke spáði því að áreiðanlegar, munnlegar getnaðarvarnir myndu koma fram á sjónarsviðið og gjörbylta samskiptum kynjanna. Pillan kom ekki á markaðinn fyrr en um áratug síðar, en hún var í þróun og hefur eflaust verið mikið til umræðu á þeim tíma sem bókin var skrifuð. Skáldsaga Clarke's skjalfestir því hvernig sumir hafa séð fyrir sér að hún gæti breytt heiminum.
Í þessari bók spáði Clarke því, í stuttu máli, að pillan myndi leiða af sér frálsar ástir, opnari og/eða skammlífari sambönd og endanlegt afnám alls tepruskapar.
Í fyrstu fannst mér hann skjóta langt yfir markið. Svo fór ég að hugsa mig aðeins um. Hlutir hafa nefnilega að mörgu leyti verið að þróast hægt og rólega í nákvæmlega þessa átt; fólk er almennt meira líbó, skilnaðartíðni hækkar jafnt og þétt og kynlíf er langt, langt frá því að vera jafn mikið feimnismál á vesturlöndum og það var þegar bók Clarke's kom út. Þetta er líka enn að þróast og breytast. Það er í sjálfu sér ekkert sem útilokar að við endum nákvæmlega á þeim stað sem Clarke lýsti í bókinni sinni.
Hvað eru nokkrir áratugir til eða frá, þegar um svona róttæka spá er að ræða?
Það er auðvitað líka að vissu leyti ofureinföldun að "kenna" pillunni um allar breytingar sem hafa orðið á samskiptum kynjanna. En það er líka alveg ljóst að hún hefur haft gríðarleg áhrif og í raun er líklegt að við skiljum ekki enn öll áhrif þessa lyfs á samfélagið okkar.
Mér fannst þetta allavegna merkileg lesning og áhugavert umhugsanarefni. Svo var þetta líka bara skemmtileg bók...
Arthur C. Clarke er náttúrulega bara snillingur.