|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Hversu algeng er pillan?
Hversu mikil áhrif hefur þefskynið á pörun fólks?
Ef það er mjög algengt að stofnað sé til sambanda meðan konan er á pillunni og ef þefskynið hefur veruleg áhrif á makavalið, hvaða áhrif hefur það á börnin sem þessi pör eignast síðar meir? Hlutverk þefskyns virðist nefnilega vera að tryggja sterkt ónæmiskerfi barna, en umpólunin af völdum pillunnar myndi hafa þveröfug áhrif. Getur pillan átt þátt í hækkandi tíðni ofnæma á vesturlöndum?
Er pillan smám saman að breyta vesturlandaþjóðum upp til hópa í "in-breeds" frá sjónarmiði ónæmiskerfisins?
Er pillan að gera tilhugalíf vesturlandabúa "óþarflega" erfitt, með því að stuðla að því að konur hrífist af körlum sem hafa minni tilhneygingu til að hrífast á móti, og öfugt?
Á þetta sinn þátt í að skýra hversvegna konur sem byrja á pillunni finna oft fyrir minni kynhvöt? Hætta lyktirnar sem þeim áður þóttu sexý og komu þeim til skyndilega að virka? Álíka spúki er tilhugsunin að það sama geti gerst við það að kona sem lifir góðu kynlífi hætti á pillunni.
Er ég orðinn meðsekur?
Annars er ég þeirrar skoðunar að einhleypur ungur ofnæmissjúklingur eins og ég ætti að forðast í lengstu lög að hugsa of mikið um þetta... tilhugalífið og samskipti kynjanna eru alveg nógu flókin fyrir. :-)
Maður hefur heldur engar upplýsingar í höndunum um hversu miklu máli þessi atriði skipta í raun, því það er fullt af öðrum þáttum sem spila inn í. Þetta eru því og verða mjög langsóttar pælingar. Alveg þar til einhverjir brjálaðir vísindamenn sýna fram á annað, að minnsta kosti...
Comments are closed.