|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Í tilefni seinna bréfsins, sem barst í dag, ákvað ég því að reyna að útfæra þessa virkni snöggvast.
Eins og er þarf að fara inn á "flókna umsóknareyðublaðið" og haka við bæði "fá bara skilaboð í lok og upphaf tímabils" og "nota skilaboð m/v getnaðarvarnarhringinn" til að þetta virki sem skyldi, en ef þetta virðist virka vel þá kannski bý ég til flýtileið að þessu í einfalda umsóknareyðublaðinu líka.
Ef svo ólíklega vill til að einhver lesandi noti getnaðarvarnarhringinn, þá þætti mér vænt um að sú hin sama prófaði þetta og léti mig vita hvort þetta virkar rétt eða ekki.
Einnig geta konur sem eru á pillunni notað þennan nýja fítus í flókna eyðublaðinu til að fá bara skilaboð í lok og upphaf hvers pilluspjalds, sem mig minnir að einhver hafi sent mér póst einhverntímann og beðið um. Það er semsagt líka nýtt og mig vantar sjálfboðaliða til að prófa það og láta mig vita hvernig gengur.
Annars eru nú 1288 símanúmer skráð í áminningu hjá mér. Ég klúðraði því vegna anna að halda upp á þúsundasta notandann í vor, en svona er lífið bara...