Gærkvöldið var frábært. Það skal þó tekið fram að það var
ekki eftirfarandi fólki að þakka:
- Helvítins herfunni sem fannst fyndið að henda kanil í andlitið á mér. Ég eyddi korteri bölvandi hástöfum með andlitið undir vatnsbunu og angaði eins og mjög nærsýnn snúður það sem eftir var kvölds. Ég er enn aumur og asnalegur í augunum og býð ekki í hvernig mér hefði liðið ef ég hefði ekki verið með einnota linsur sem tóku á sig mesta skítinn. Mig hefur aldrei áður langað að berja kvenmann.
- Dyravarðafávitanum á Sirkus. Nýr dyravörður, stórgallaður, endilega skilið honum - þið hljótið að eiga rétt á endurgreiðslu. Að þurfa að smjaðra fyrir þessum maðki til að komast inn á staðinn þar sem ég hef verið kurteis og eyðslusamur fastagestur um hverja helgi í mörg ár var ekki alveg til að bæta skapið. Það telst líklega til tíðinda að svona ókurteis maður hafi komist óslasaður gegnum nóttina.
Þið hin sem voruð upp til hópa sæt og skemmtileg og frábær, takk fyrir að bæta ofangreint upp og rúmlega það! Þar ber helst að nefna gaurana sem hleyptu mér fram fyrir klósettröðina eftir kanilvesenið, Ingó fyrir að halda stuðinu gangandi og afmælisbörnunum fyrir að bjóða í góð partí.