[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Góði Hirðirinn og eitthvað

2004-07-30 22:11
Góði Hirðirinn (í Fellsmúla, gamla World Class húsinu) er snilldarbúð. Mæli eindregið með henni, þar getið þið á einu bretti styrkt gott málefni, endurunnið og eignast fallega hluti fyrir sáralítinn pening. Ég keypti þar ljós í stofuna mína í dag, stand undir hátalara og lyklaborð. Ég hef líklega verslað helming allra lyklaborða sem ég hef nokkurntímann keypt í þessari búð, þar með talið þráðlausa lyklaborðið í stofunni. Góð, góð búð.

Annars er ég orðinn soldið seinn í afmæli herra Svanssonar. Þreytan eftir átök gærdagsins eitthvað að segja til sín, maður er í mestu vandræðum með að koma sér úr stólnum. En það hlýtur nú að fara að takast...

Annað kvöld verð ég á Innipúkanum. Vei!

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni