[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Klaki.net: mini-myndasöfn

2004-02-09 00:47
Jæja, ég bjó til tól fyrir Klakanotendur áðan. Það hefur komið fyrir nokkuð oft undanfarið að ég hef verið beðinn að henda myndum í hvelli á netið, þannig að fólk gæti skoðað þær. Yfirleitt er um að ræða eina möppu fulla af myndum, þar sem ég hef bara gefið nokkrar skeljaskipanir til að búa til smámyndir úr öllu og eina HTML yfirlitssíðu.

Ég ákvað að taka smá tíma í kvöld til að gera þetta einfaldara fyrir mig - og aðra. Ég bjó því til forritið mini-myndasafn.

Notkun á því er einföld:

  1. Setja fullt af myndum í möppu á vefsvæði á Klaka
  2. Logga sig inn með SSH, fara ofaní möppuna sem inniheldur allar myndirnar.
  3. Gefa skipunina: mini-myndasafn
  4. Svara nokkrum spurningum (eða ýta bara nokkrum sinnum á ENTER til að leyfa forritinu að ráða bara).

Loks má breyta .html skránni sem forritið býr til með ritli, ef menn vilja setja skýringar við myndir, eyða myndum eða bæta við öðrum texta... nú eða bara nota óbreytt.

Vonandi eru þetta skiljanlegar leiðbeiningar og vonandi gagnast þetta einhverjum. :-)


Í öðrum ótengdum Klakafréttum er það helst að ég HaloScan-væddi þrjár dagbækur í dag og losaði eina póststíflu, auk myndafiktsins hér fyrir ofan. Duglegur kerfisstjóri bara!

Uppfært: Hér er (frekar óspennandi) sýnishorn af því hvernig mini-myndasafn lítur út og áhugasamir geta nú skoðað forritskóðann hér.

     Re: Klaki.net: mini-myndasöfn (Brynja)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni