[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Geta vefir borgað stefgjöld?

2004-01-09 14:01
Í framhaldi af áhugaverðum pælingum á vefnum hans Más, tók ég mig til og sendi eftirfarandi bréf til STEF:

    From: "Bjarni R. Einarsson" <bre@klaki.net>
    To: stef@stef.is
    Subject: Fyrirspurn um tónlist á vef

    Góðan daginn!

    Ég er forvitinn - eruð þið opin fyrir því að selja mér leyfi til að setja tónlist á vefinn hjá mér og útvarpa þannig til lesenda, á svipaðan hátt og útvarpsstöðvar fá að gera í dag?

    Ég viðurkenni það reyndar strax að ég er ekki til í að borga mikinn pening og hef ekki í hyggju að stunda þetta í neitt stórum stíl, ég er aðallega að kanna hvort það sé mögulegt að halda úti tekjulausum áhugamannavef með tónlistarumfjöllun þar sem maður lætur (á löglegan hátt) stök lög fylgja með pistlunum svo lesendur geti hlustað sjálfir um leið og þeir lesa pistilinn.

    Er þetta hægt?

Það verður áhugavert að sjá hvert svarið verður. Mér þætti nefnilega í fullri alvöru áhugavert að eiga kost á að borga fyrir leyfi til að deila sýnishornum úr tónlistarsafninu mínu með lesendum þessarar síðu.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni