|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ef það er samþykkt mun allur klámfenginn ruslpóstur verða lögbrot sem refsa má með allt að 6 mánaða fangelsi, því það er jú eðli ruslpósts að sendandi veit ekki hver móttakandinn er og óhætt er að reikna með að börn fái ruslpóst alveg eins og aðrir sem eru með netfang.
Hljómar vel, ekki satt?
Nema hvað, að kynfræðsla er "kynferðislegt efni", er það ekki? Svo og margir dónalegir brandarar, eða erótískar sögur. Það er fáránleg tilhugsun að maður geti lent í fangelsi í allt að 6 mánuðum fyrir að senda kynfræðsluefni með tölvupósti. Eða mega börn ekki fá kynfræðslu lengur? Athugið að samkvæmt greinargerðinni eru börn allir yngri en 18 ára.
Jafnframt virðist í fljótu bragði ekki vera refsivert að senda fullorðnum barnaklám, sem hlýtur eiginlega að vera klúður hjá þeim sem sömdu lagafrumvarpið.
Svo þegar maður les greinargerðina, þá kemur í ljós að þau eru að vonast til að dekka vefsíður með þessu líka - sem þýðir að það yrði bannað að gefa út kynfræðslu eða segja dónasögur á vefnum. Síðan mín yrði líklega ólögleg af því ég skrifa af og til um kynlíf og tengd mál.
Í fyrstu gladdist ég yfir þessu frumvarpi, en ég er eiginlega alveg búinn að skipta um skoðun.
Þessu tengt, en samt ekki: Thinkofthechildren.co.uk
Uppfært: Ég sendi þingkonunum afrit af þessum pistli með tölvupósti, það verður áhugavert að sjá hvort ég fæ einhver svör.