[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar

2003-10-12 19:06
Mér hefur alltaf þótt kynhegðun mannskepnunnar áhugavert fyrirbæri. Líklega er það þessvegna sem ég stóð ég í heilmiklum vangaveltum um vændi og sænsku leiðina fyrr á árinu. Ég sótti ráðstefnu um mansal, las skýrsluna sem dómsmálaráðuneytið lét vinna fyrir sig við endurskoðun á lögum þessu tengt, fletti í ársskýrslu Stígamóta, horfði á myndina Lilja 4-ever og spjallaði helling við feminista og allskonar annað fólk um þessi mál.

Svo fékk ég ógeð á málefnunu og dró mig bara út úr umræðunni. Það var mikið til af því að ég komst að því að flestir sem ræða þetta hafa engan áhuga á rökum eða raunveruleikanum - fyrir flesta er þetta siðferðis- og tilfinningaspursmál og umræðurnar eru oft rosalega fljótar að breytast í skítkast. Og þegar maður hefur sjálfur engra sérstakra hagsmuna að gæta, þá nennir maður ekki að standa í slíku.

En áður en ég fékk ógeð, skrifaði ég uppkast að löngum pistli um mína sýn á málið. Ég náði hinsvegar ekki að klára hann og birti hann því aldrei opinberlega. Ég rak augun í hann um daginn þegar ég sá að vændisumræðan og umræðan um "sænsku leiðina" væri komin í gang aftur og var að fletta í gömlu dagbókarfærslum sem ég hafði skrifað um þetta, í leit að einhverju sem mætti endurnýta með lítilli fyrirhöfn.

Eftir smá umhugsun hef ég ákveðið að birta bara pistilinn í ókláraðri mynd. Hugsanlega er þetta gagnlegt innlegg í umræðuna?

Ég hafði reyndar líka verið að spá í að pússa þetta til (fjarlægja kaflann um Lilju 4-ever (of gamallt), finna fleiri heimildir, orða hluti betur og fjalla nánar um þá málefnalegu gagnrýni sem sænska leiðin hefur fengið) og senda einhverju blaði eða tímariti (B&B? Veru?), en ég hef hvorki tíma né nennu til þess. Ef einhver vill klára þetta fyrir mig, koma í verð og deila höfundalaununum, þá er það alveg velkomið. ;-)

     Re: Vændi, Sænska leiðin, .. (Nonni)
     Re: Vændi, Sænska leiðin, .. (Óli Jens)
         Re: Re: Vændi, Sænska leið.. (Bjarni Rúnar)
     Re: Vændi, Sænska leiðin, .. (Ágúst)
         Re: Re: Vændi, Sænska leið.. (Anonymous)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni