|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Áskorun eitt: Hjálpið vinum ykkar að taka afrit
Ég skora á alla tölvunörda að hjálpa minna nörduðum vinum og kunningjum að taka afrit af gögnum sínum. Það þarf að kenna fólki um mikilvægi afrita og það þarf að hjálpa fólki koma sér upp þægileg afritunarkerfi.
Nokkrar hugmyndir:
Ég skora á nörda að kynna sér einfaldar afritunarlausnir og ráðleggja vinum og kunningjum, hjálpa fólki að forðast óþarft gagnatap. Hafið bara í huga að lausnin þarf að vera tiltölulega einföld og umfram allt þægileg! Ef lausnin er óþægileg þá mun fólk trassa það að taka afrit og lenda í vandræðum. Sjálfvirk afritunarkerfi eru næstum alltaf betri en handvirk kerfi.
Áskorun tvö: Smíðið drauma-afritunarkerfið mitt!
Þetta er áskorun til nörda sem hafa gaman af forritun. Þetta gæti verið hráefni í að minnsta kosti 2-3 stór lokaverkefni á háskólastigi og góð lausn myndi líklega strax skjóta höfundunum upp á stjörnuhiminn íslenska tölvuheimsins. Þetta er sko ávísun á frægð, frama og taumlausa aðdáun frá áhugaverða kyninu, og ég er bara að gefa ykkur þessa hugmynd, ykkur að kostnaðarlausu. Ekki valda mér vonbrigðum!
Það er nefnilega tvennt mjög spennandi að gerast í tölvuheiminum á Íslandi þessa dagana, sem kemur afritunartöku beint við. Annarsvegar eru háhraða-nettengingar með ókeypis innanlandsbandvídd að verða mjög algengar. Hinsvegar eru harðir diskar orðnir sjúklega stórir og venjulegar heimilis- og skrifstofuvélar geta geymt óheyrilegt gagnamagn.
Yfirleitt er þessu plássi bara sóað með klámi, kvikmyndum og tónlist, sem er svo sem gott og blessað... en mætti ekki nota hluta af því til að taka afrit?
Það ætti einhver að smíða afritunarkerfi sem gerir fólki auðvelt að geyma afrit af mikilvægum gögnum í vannýttu diskaplássi nágrannans, gegn því að endurgjalda honum greiðann. Senda afritin bara yfir ókeypis innanlands-Internetið með háhraða ADSL-tengingunni sinni. Kostar ekkert og veitir betra gagnaöryggi en flestar lausnirnar sem ég taldi upp hér fyrir ofan.
Afritunarkerfi Klaka er byggt á þessari hugmynd. Það vill svo til að ég hef aðgang að tölvu í öðrum bæjarhluta sem er með 80GB hörðum diski, en hún þurfti í raun ekki nema einn sjötta af því plássi. Þessi vél getur líka átt ókeypis samskipti við aðrar íslenskar tölvur. Ég tók mig þessvegna til og stillti vélina til að sækja hreinlega öryggisafrit af Klaka einusinni á sólarhring, og Klaki hýsir í staðinn afrit af nokkrum mikilvægum skrám af þessari vél.
Afritin eru þjöppuð og dulrituð (með gnupg) sem tryggir að óviðkomandi aðilar geti ekki lesið einkapóst kærustunnar eða lokaðan hluta dagbókarinnar út úr afritunum. Flesta daga er bara tekið afrit af því sem hefur breyst, sem heldur stærð afritanna innan hóflegra marka, en af og til tekur kerfið heildarafrit af einhverju diskasvæði.
Mjög einfalt, svínvirkar - og kostar ekkert nema vinnuna sem fór í að setja þetta upp. Þetta er öruggara og skilvirkara afritunarkerfi heldur en hefur verið á flestum vinnustöðum mínum gegnum tíðina.
Áskorunin mín snýst um að taka þessa hugmynd, alhæfa hana svo hún henti jafnt Windows, Macintosh og *nix notendum og gera að "pakkalausn" þannig að menn þurfi bara að sækja eitt lítið forrit til að gerast þáttakendur í Afritunarkerfi Íslenska Lýðveldisins.
Best væri ef fólk gæti bara sótt uppsetningarforrit. Þegar það væri keyrt myndi það spyrja hve mikið af diskaplássi tölvunnar mætti nota til að geyma öryggisafrit annarra, hvaða svæði á diskinum innihéldu gögn sem þyrfti að taka afrit af og hvaða lykilorð ætti að nota við dulritun. Svo myndi bara allt fara að virka alveg sjálfkrafa...
Svo þyrfti tól til að endurheimta afritin og það þyrfti líklega einhvern miðlægan gagnagrunn yfir hver geymir afrit hvers sem fólk gæti leitað í þegar vandræði koma upp. Gott væri ef kerfið myndi tryggja að ávallt væru til tvö afrit af öllu, á ólíkum vélum og ólíkum stöðum. Fólk ætti ekki að fá að taka þátt í afritunarnetinu nema það legði sæmilega geymslugetu í púkkið. Og allt ætti þetta að vera rekið af hugsjónamönnum og ókeypis fyrir alla, því annars munu sumir ekki tíma að taka þátt.
Þetta er auðvitað draumastaðan. Margar "ófullkomnari" lausnir væru strax framför. Til dæmis grasrótarsamtök Linux nörda sem skiptast á að geyma afrit af vefþjónum hvor annarra, eða íslenskt fyrirtæki sem sérhæfði sig í að geyma afrit fyrir heimili og önnur smærri fyrirtæki. Internetþjónustur gætu hæglega boðið viðskiptavinum afritunarþjónustu... og svo framvegis.
Mér finnst allavegna að það ætti einhver að láta þessa hugmynd mína verða að raunveruleika. Ef ég hefði tíma myndi ég gera það sjálfur, en ég get það ekki og er orðinn frekar pirraður á að sitja á þessari hugmynd og geta ekkert gert. Ég skora þessvegna á ykkur að segja nördavinum ykkar frá þessari áskorun, í von um að einhver þarna úti taki þetta að sér. Ég er meira en til í að gefa góð ráð og spjalla við fólk sem hefur áhuga á að spreyta sig í þessu.