|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Unnur er að lenda í því að skrár sem hún er að vinna með í B.A. ritgerðinni sinni eru að skemmast handahófskennt, annaðhvort vegna vélbúnaðar eða vegna bögga í skráarkerfinu á vélinni hennar (reiserfs), Borgar lenti í svipuðu og það var frægt í bloggheimum og víðar að næsta plata Dr. Gunna hékk milli heims og helju eftir harðdiskbilun.
Tölvunotkun er orðinn mjög ríkur þáttur í námi og starfi gríðarlega margra Íslendinga og það er bara staðreynd að tölvur eru drasl sem bilar. Gagnatap verður oft og iðulega hjá fólki, af eftirfarandi ástæðum:
Það má lágmarka skaðann af öllum ofangreindum slysum með því að taka öryggisafrit af mikilvægum gögnum. Þetta vita kerfisstjórar og aðrir tölvunördar, en það þarf að kenna almenningi þetta og einfalda málið svo allir geti tekið afrit - því næstum allir eiga persónuleg gögn á tölvutæku formi núorðið.
Ég er því með áskorun (raunar tvær) til íslenskra tölvunörda: