[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Verisign eru fávitar

2003-09-16 20:25
Magnað.

Frétt dagsins er líklega að Verisign (fyrirtækið sem sér um .com og .net lénin, meðal annars) hefur tekið upp á sitt einsdæmi að eigna sér öll óskráð lén og skráð lén sem eru óvirk.

Dæmi: Ef þú gleymir punktinum og heimsækir óvart breklaki.net þá birtist auglýsingasíða frá Verisign.

Fyrst þegar ég heyrði af þessu hugsaði ég bara "ojj, gráðugir asnar", en þegar ég fór að kanna málið betur áttaði ég mig á því að þetta er ekki bara græðgi - þetta er beinlínis glæpsamleg skemmdarstarfsemi.

Eitt dæmi er að ef þú sendir óvart póst á lén sem er ekki til, þá fær Verisign póstinn og sér um að "hafna" honum - sem kann að hljóma vel í fyrstu en veldur í raun allskonar vandræðum, auk þess að vera í strangt til tekið þjófnaður á póstinum.

Þetta veldur líka meiriháttar vandræðum fyrir ýmsar spamvarnir og gjörbreytir hegðun póstkerfisins á Internetinu, sem er að miklu leyti háð hegðun DNS kerfinsins. Það hefur m.a. það í för með sér að póstur sem áður tafðist bara vegna bilana eða mistaka týnist endanlega. Sumar spamvarnir (t.d. eldri útgáfur af SpamAssassin) sem nota úrelta DNS-spamvarnarlista eru vísar með að ranglega merkja allan póst sem spam.

Loks má ekki gleyma "tilganginum" með þessu - þetta eyðileggur hjálparsíður netþjónusta og vafraframleiðenda sem eiga að hjálpa notendum sem gera prentvillur í vefslóðum - Verisign síðan birtist í staðinn til að þeir geti grætt á auglýsingum. Þeir geta líka hæglega haldið skrá yfir allar prentvillu-vefslóðirnar og unnið úr henni sem lið í meiriháttar persónunjósnum...

Tæknimenn netsins eru, eðlilega, hoppandi brjálaðir yfir þessu. Ég er bara agndofa yfir að þeir skuli vera svona yfirmáta heimskir.

Það er áhugavert í þessu samhengi, að þetta er sama fyrirtæki og þykist vera nógu ábyrgt og traust til að sjá um útgáfu á rafrænum skilríkjum fyrir dulrituð vefsamskipti, skilríkin sem við treystum á dags-daglega þegar við notum heimabankana okkar og stundum viðskipti á Netinu. Maður vill geta treyst slíkum aðila, en eftir þennan skrípaleik þá sé ég ekki alveg hvernig það á að vera hægt.

Þeir eru bara fávitar.

     Re: Verisign eru fávitar (Einar (cowo..)
         Re: Re: Verisign eru fávitar (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Verisign eru f.. (Einar (cowo..)
     DNS (JBJ)
         Re: DNS (JBJ)
             Re: Re: DNS (Bjarni Rúnar)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni