[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Opið Jabber-hús á Klaka

2003-09-09 16:13
Hei, þú! Hættu að nota MSN og skráðu þig á Jabber!

Til að auðvelda fólki flutninginn höfum við Hrafnkell ákveðið að hafa Jabber þjóninn sem hann setti upp á Klaka opinn fyrir gesti og gangandi - hver sem er getur fengið úthlutað "nafn@jabber.klaki.net", a.m.k. fyrst um sinn.

Skráningar fara yfirleitt fram með hjálp Jabber-spjallforritsins, þ.a. ekki spyrja mig hvernig á að gera það, því ég kann bara á eitt Jabber forrit.

Athugið að þó þið skráið ykkur á þjóninn okkar þá hindrar það alls ekki að þið getið átt samskipti við Jabber notendur á öðrum þjónum - en það er hagræði að því að skrá sig á þjóni hérlendis frekar en að skrá sig erlendis, því það eru minni líkur á truflunum. Fyrirtæki og netþjónustur ættu auðvitað að setja upp eigin Jabber þjóna til að lágmarka bandvíddarnotkun þessu tengt.

Þið sem skráið ykkur, endilega bloggið um það eða skiljið eftir komment hér svo fólk viti hvernig það á að ná sambandi við ykkur á þessu nýja spjallneti.

Svo klæðumst við bara öll galdrahatta og kufla og allt verður voða gott... ;-)

Ef menn vita um fleiri opna íslenska Jabber þjóna þá væri áhugavert að fá ábendingar í athugasemdunum við þessa færslu.

     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (JBJ)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (SiggiSveinn)
         Re: Re: Opið Jabber-hús á .. (Már Örlygsson)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Már Örlygsson)
     Opnir Jabber þjónar (Már Örlygsson)
         Re: Opnir Jabber þjónar (Bjarni Rúnar)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Logi)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Sigga Sif)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Árdís)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (soffi)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Freyr)
         Re: Re: Opið Jabber-hús á .. (Freyr)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Stefán Eina..)
     Re: Opið Jabber-hús á Klaka (Óli Jens)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni