|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Klukkan tifar, bráðum dettum við Linux notendurnir út af MSN netinu og þið í Windows heiminum verðið bara að vera án okkar. Linux nördarnir hérna í vinnunni eru byrjaðir að Jabber-væðast...
Maður svona veltir fyrir sér hvort lokun MSN eigi kannski bara eftir að verða til þess að Jabber fari loksins á almennilegt flug. Það má alltaf vona!
Efst til vinstri hægri á dagbókarforsíðunni má sjá hvaða nöfn ég er með á hinum ýmsu spjallnetum, fyrir þá sem vilja ná sambandi við mig.
Linux nördar sem vilja komast í gott textahams-spjall forrit fyrir Jabber, MSN (enn sem komið er), IRC og hin kerfin ættu að kíkja á CenterICQ - það svínvirkar fyrir mig. Vinnufélagarnir eru flestir að nota GAIM.
Uppfært: Windows notendur ættu kannski að fylgja ráðum Más hvað varðar forritaval.