[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


www.p.molar.is og Og Vodafone

2003-07-08 13:30
Jæja, þá er ég loksins búinn að tryggja rekstur pilluáminningarinnar með samningi. Nú er ég semsagt með pappír upp á að ég megi nota kerfi Og Vodafone til að senda pilluáminningar móttakendum að kostnaðarlausu, en áminningarnar munu eftir sem áður innihalda auglýsingar valdar af Og Vodafone.

Eftir að skrifað var undir samninginn fékk ég aðgang að mun betri vefgátt, gátt sem er hönnuð með samskipti við sjálfvirk kerfi í huga og reynir að vinna með þeim í staðinn fyrir að hindra "misnotkun" eins og almenna vefgáttin gerir. Það er stór framför - og önnur framför er að nú get ég stillt sendada skilaboðanna á "p.molar.is", sem er auðvitað miklu fallegra.

Pilluáminningin tók þetta nýja kerfi í notkun í hádeginu í dag. Fyrsta útfærsla er þ.a. viðskiptavinir Og Vodafone fá skilaboð frá gáttinni þeirra, en viðskiptavinir Símans frá vit.is eins og áður. Þetta er gert til að lágmarka kostnað allra. Hinsvegar hefur bæst við sú virkni að ef ekki næst samband við aðra gáttina, þá er reynt að senda gegnum hina. Þjónustan ætti því að vera orðin nokkru áreiðanlegri en áður.

Mér finnst þetta bara allt hið besta mál, þeir hjá Og Vodafone fá sko plús í kladdann fyrir að taka svona vel á móti mér... og mínum rúmlega 530 áskrifendum. :-) Ég hef hinsvegar ekki náð tali af Landssímamönnum til að ræða hliðstæðan samning. Ég hringdi um daginn og skildi eftir skilaboð í talhólfi, en það kom ekkert út úr því.

Ég er hinsvegar ekkert ofboðslega stressaður yfir þessu lengur og mun ganga í það mál aftur þegar ég hef aðeins minna að gera í vinnunni. Svo á ég líka alveg eftir að skoða samstarf við lyfjafyrirtæki eða landlæknisembættið eða eitthvað. Veit samt ekki hvar ég ætti að byrja til að skoða slíkt, þ.a. líklega gerist ekkert í því í bráð.

Það sem ég persónulega græði á þessum nýjustu breytingum (f. utan gott karma, frægð og frama) er að í samningnum stóð að ég mætti líka nota gáttina fyrir tilraunastarfsemi og fikt - innan skynsamlegra marka að sjálfsögðu. Mér finnst það fínt!

Ég held að allir séu að "græða" á þessu fyrirkomulagi - ég, Og Vodafone og áskrifendur áminningarinnar. Það er kannski ekki mjög kapitalískt, en mér finnst það fallegt.

     Re: www.p.molar.is og Og V.. (Már Örlygsson)
     Re: www.p.molar.is og Og V.. (Kari)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni