|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mín kenning er sú að að flestir karlmenn pissi standandi af því að það er örlítið fljótlegra og af því að þeir þurfa ekki að þrífa klósettið sjálfir. Og kannski af því að það getur verið huggulegra að halda smá fjarlægð frá subbulegum klósettum. Og af því að okkur er kennt að það sé stelpulegt að sitja, og ekki viljum við vera einhverjar stelpur! Ojj nei!!
Ég þekki annars fleiri en einn karlmann sem hefur vanið sig af því að pissa standandi í snarhasti eftir að hann varð ábyrgur fyrir þrifum. :-)
Ég tel sjálfan mig þar með - ég pissa yfirleitt sitjandi ef klósettið er ekki þeim mun subbulegra fyrir. Snyrtimennskan og þrifin eiga þar stóran þátt, en það skiptir mig einnig máli að það fer víst betur með þvag- og kynfærin að sitja. Maður nær betur að tæma allt dótið og það þykir víst hollt. Ég vil fara vel með græjurnar mínar.
Annar kostur er að hreyfing vöðvanna þegar maður stendur upp kreistir yfirleitt síðasta dropann út, sem gefur manni kjörið tækifæri til að passa að hann endi í klósettpappír og klósetti - en ekki í nærbuxunum. Það er alveg sama hvað maður hristir mikið þegar maður pissar standandi, maður nær aldrei síðasta dropanum, hann lætur ekki á sér kræla fyrr en maður labbar af stað. Mér finnst leiðinlegt að það sé pissufýla af naríunum mínum.
Semsagt, margar góðar ástæður fyrir að pissa sitjandi. Ég held að kalt mat hljóti að vera að flestir karlmenn pissi standandi einfaldlega af því að þeir eru kjánar.
Reyndar er ein ástæða enn til að venja sig á að pissa sitjandi... Karlmenn
sem venja sig á að pissa sitjandi og sjá um þrif á klósetti (í smá tíma)
komast fljótt að því að kvenþjóðin hefur haft okkur fyrir rangri sök í
gegnum öll þessi ár. Konur pissa nefnilega líka út fyrir.
Við getum nefnilega stýrt meðan við sitjum og verið 100% vissir um að það fari allt rétta leið... en konur geta það ekki. Þessvegna kemst karlmaður sem pissar sitjandi að því að rökréttast sé að karlmenn pissi alltaf sitjandi og að konurnar sjái alfarið um þrif á klósettum - því subbuskapurinn er þá allur þeim að kenna.
Jæja, best að fara heim og tilkynna Unni nýja verkaskiptingu! Ég held ég pissi samt fyrst. ;-)