[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Súri, súri draumur

2003-06-20 11:11
Í morgun var mig að dreyma ítrekaðar tilraunir með einhverja risastóra moskítóflugu. Nema það hafi verið geitungur eða krabbi. Paddan var svona á stærð við hendina á mér.

Þessi skrítna padda hvorki stakk né beit, heldur reis upp á fjórar afturlappir, horfði í augun á fólki og faðmaði andlit þess með fremri tvær. Hún faðmaði lika eitt svín, ég man ekki af hverju hún var að faðma svín. Held það hafi verið tilraun. Alltaf þegar hún faðmaði, þá láku 2-3 blóðdropar úr afturendanum á henni og hún byrjaði að svitna svo það fossaði af henni.

Ég man að mér þótti þessi padda mjög ógnvekjandi - ég vildi sko ekki láta hana faðma mig.

Svo dreymdi mig líka stóra gula og bláa gullfiska sem höfðu drepist í rúminu mínu. Það hafði eitthvað að gera með tilraun til að láta risapödduna faðma fiska, held ég. Það var samt ekkert ógeðslegt, það var eins og fiskarnir breyttust allir í gúmmí þegar þeir voru teknir út úr fiskabúrinu. Ég reyndi samt að koma í veg fyrir að Unnur sæi þá, til að koma henni ekki í uppnám.

Ég vaknaði hress en undrandi á sjálfum mér að dreyma svona a vitleysu.

     Re: Súri, súri draumur (Unnur)
     Re: Súri, súri draumur (Jóm)

Comments are closed.

Nýtt í dagbókinni