[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Ojj, kynjagleraugu!

2003-06-19 16:38
Hugtakið "kynjagleraugu", sem margir feministar eru svo hrifnir af fer í taugarnar á mér. Gyða kemst ágætlega að orði með hvað sé að þessum hugsunarhætti í pistlinum sínum í morgun:

    Þaðan sem ég sat hljómaði þetta eins og í bíó þar sem sálfræðingurinn lætur sjúklinginn skoða spjald með klessum og sjúklingurinn á að segja hvað hann sér út úr klessunum. Nauðgun væri án vafa svar femínistafélagsins eða allavegana er það álitið sem þátturinn Fólk með Sirrý skildi eftir hjá mér af Femínista félagi Íslands.

Þetta er einmitt það sem mér hefur fundist líka - það að "setja upp kynjagleraugu" snýst yfirleitt um að leggja sig fram við að lesa alltaf kvenfyrirlitningu út úr öllu, finna grýlu (eða öllu heldur leppalúða) í hverju horni og hegða sér svo í samræmi við það. Með slík gleraugu virðist ómögulegt að sjá kynlíf án ofbeldis, nekt án niðurlægingar, grín án illsku eða yfir höfuð nokkur samskipti kynjanna án átaka og leiðinda af einhverju tagi.

Frekar sorglegt! En eins og með Rorschach myndirnar sem Gyða minnist á, þá segir slíkt viðhorf oft mun meira um þann sem túlkar heldur en það sem túlkað er.

Það er mín skoðun að svona hegðun, að labba um með kynjagleraugu, leiði alls ekki til skynsamlegrar hegðunar eða uppbyggilegrar jafnréttisbaráttu - það leiðir mun frekar til þess hugsjónamenn sói orkunni í að berjast við vindmyllur og pirra fólk að óþörfu.

Ég er fylgjandi jafnrétti, en ég er (yfirleitt) á móti kynjagleraugum.


Annars eru alveg þokkalegar líkur á að fólk með kynjagleraugun á nefinu skammi mig í dag vegna klæðaburðar míns. Ég er nú þegar búinn að fá góðlátlega ábendingu um að ég sé ekki alveg klæddur í anda dagsins.

Ég mundi nefnilega ekki eftir deginum í morgun þegar ég stökk á fætur og var orðinn of seinn á fund. Ég fór þessvegna í hugsunarleysi bara í sama bol og ég var í í gær: fyndna Dr. Strangelove "WOMEN SENSE MY POWER" bolinn sem tengdamamma gaf mér.

Ég vona að ég rekist ekki á neinn með kynjagleraugun á nefninu, því ég einhvernveginn efast um að slík gleraugu sjá húmorinn í fatavali dagsins og ég hreinlega nenni ekki að vera eitthvað afsaka mig. Ég get nefnilega ekki að því gert að finnast þetta "slys" bara nokkuð fyndið. ;-)


Mér finnst samt mjög gaman að heyra að í dag eru 88 ár síðan konur fengu kosningarétt hér á landi - það er heil mannsævi og fáar konur á landinu í dag sem hafa þurft að búa við það óréttlæti að mega ekki kjósa. Til hamingju allir!

     Kynjagleraugu eru fín! (Már Örlygsson)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni