|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst mjög áhugavert, en samt á vissan hátt erfitt að mæta á þessa fundi og taka þátt í umræðu á póstlistanum þeirra. Málið er að þó ég sé ákafur jafnréttissinni og meðvitaður um að staða kvenna er að mörgu leyti verri en staða karla, þá er ég mjög oft ósammála þeim feministum sem mest fer fyrir hér á landi, bæði hvað varðar áherslur og aðferðir. Það er skrítið hvernig fólk getur lagt upp með sömu (eða mjög svipaðar) hugsjónir og komist að gjörólíkum niðurstöðum.
Það er líka erfitt að vera karlmaður í svona hópi - maður finnur alveg að margar konur þarna eru reiðar út í okkur. Í gærkvöldi voru starfshópurinn um samskipti við karla og eini karlmaðurinn í stjórn félagsins (sem var n.b. ekki viðstaddur) tilefni flestra brandara fundarins. Á stofnfundinum var mikið klappað fyrir "hvatningarávarpi" eins skipuleggjandans, en það ávarp snérist í raun allt um konur að hefna sín með ofbeldi á mis-vondum körlum. Þegar karlmönnum er svarað á póstlistum þá eru reglulega notaðir frasar eins og "þið ungu mennirnir" og fleira í þeim dúr, svona orðræða sem virðist hönnuð til að skapa fjarlægð milli "okkar" og "þeirra".
Ég get ekki alveg sagt að ég lái þeim grínið (enda er það yfirleitt alls ekki illa meint) og skil alveg smá heift og tortryggni, en þetta getur samt verið fráhrindandi. Maður er að upplifa það að vera í minnihluta bæði vegna kynferðis og vegna skoðana sinna. Það er skrítin tilfinning - tilfinning sem konur í hefðbundnum karlastörfum þekkja eflaust mjög vel. Maður lærir vonandi bara af þessu... og auðvitað eru flestar konurnar þarna bara hressar og vinalegar og ánægðar að sjá sem flesta sýna þessum málaflokki áhuga.
Það verður gaman að fylgjast með þessu, sjá hvernig þetta þróast.
Meðan ég sat á fundinum í gærkvöldi fékk ég í SMS tölvupóst frá kennara við MR, sem bað um leyfi til að kynna pilluáminninguna í námsefni tengt kynfræðslu. Mér finnst það alveg frábært og sagði auðvitað já já já. Er maður ekki ofurtöffari ef maður er kominn í námsefni skólanna? Mér finnst það allavegna.
Skráðir notendur pilluáminningarinnar eru nú orðnir 477.