|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Svona taumlaus eyðsla og stanslaust sukk má ekki líðast! Skamm ég!
Allur sparnaðurinn af því að reka ekki bíl og kaupa föt í rauðakrossbúðinni og sníkja mat af vinum sínum og borða jógúrt á kaffistofunni í vinnunni er að hverfa oní óseðjandi gin djammiðnaðarins, sem allir vita að er nátengdur klámvæðingunni og þar af leiðandi mjög, mjög, mjög, mjög, mjög, mjög slæmur.
Í veikri von um að sporna við þessari ógnvænlegu þróun tók ég mig til rétt áðan og tengdi örbylgjuloftnetskapalinn sem er búinn að vera liggjandi undir sófanum að safna ryki síðastliðin 2 ár. Nema þau séu orðin þrjú. Hvað um það, þetta var kærkomið tækifæri til að nota elsku besta leatherman hnífinn minn, ó mér leið svo karlmannlega, mjög gaman.
Svo kenndi ég vídjóinu að birta allar stöðvarnar sem við höfum verið án til þessa: snjólaust RÚV, Skjá Reinn, Popptíví, Ztöð 2 og auðvitað Ómega. Hvernig höfum við getað verið án Ómegu allan þennan tíma?
Kannski ef við komum okkur upp góðri sjónvarpsfíkn þá getum við látið það koma í staðinn fyrir að eiga vini og fara út úr húsi og eyða peningum? Væri það ekki frábært?
Húrra fyrir sparnaði! Húrra fyrir sjónvarpi!
Uppfært: Allt gengur samkvæmt áætlun. Ég er nú búinn að vera með PoppTíví í heila klukkustund, er búinn að sjá einn South Park þátt og hef hvorki eytt neinum peningum né drukkið neitt rauðvín! Jess!