[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Maður með mönnum

2003-02-01 01:58
Dem, ég er alveg búinn að sjá það að maður er ekki maður með mönnum nema maður sé penni fyrir pólitískt vefrit. :-)

Hehe. Annars finnst mér einmitt gaman að velta fyrir mér stöðu blogga og einstaklingssíðna eins og þessari, í samanburði við vefrit eins og Deigluna eða Múrinn. Finnst mönnum meira mark takandi á skoðunum sem birtar eru á vefriti heldur en á bloggsíðu? Ef svo er, hversvegna? Er það (ímyndað?) aðhald ritstjórnar sem veldur því? Eða er það kannski bara af því að á fínum vefritum þá leyfa menn sér ekki að nota orð eins og "dem" eða "hehe" og pistlahöfundar birta aldrei útkomur úr persónuleikaprófunum sem þeir taka á netinu?

Ég held ég sé ekkert að reyna að segja neitt sérstakt með þessum pistli... mér finnst þetta bara áhugavert. Ég hef reyndar af og til velt fyrir mér hvort ég hefði áhuga á að skrifa fyrir svona "alvöru" vefrit, og hef alltaf komist að þeirri niðurstöðu að ég vilji það ekki. Ég er alveg nógu mikill hrokagikkur fyrir - að skrif mín birtist í eðlilegu samhengi með bulli og misheppnuðum tilraunum til að vera fyndinn finnst mér brjóta oddinn aðeins af hrokanum. Eða eitthvað... kannski er ég bara að snobba niður á við. Svo er hitt, ég er svo mikið pólitískt viðriðni að ég myndi líklega hvergi passa í hópinn - mér finnst voða næs að geta setið hérna á litla sápukassanum mínum og púað á hvern þann sem mér sýnist það augnablikið.

Loks finnst mér þessi íslensku vefrit öll virðast geld og hrædd við gagnrýni, því engin þeirra eru með umræðukerfi þar sem lesendur geta hengt gagnrýnisorð (eða hrós) beint á greinarnar sjálfar. Lesendur þurfa yfirleitt að hafa sérstaklega fyrir því að leita uppi gagnrýni og önnur sjónarmið - ætla má að fæstir nenni því. Flestir sem halda úti bloggsíðum eru hinsvegar með spjallkerfi þar sem lesendur geta brugðist við stökum færslum. Fyrir pólitíska umræðu finnst mér það eiginlega miklu töffaralegra fyrirkomulag.

Jájá. Ég töffari. Vefrit lúðar. Rosalega er ég ánægður með þessa niðurstöðu! :-)

Góða nótt!

     Re: Maður með mönnum (Finnbogi)
     Re: Maður með mönnum (Salvör)
     Re: Maður með mönnum (Svansson.net)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni