|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
En að öllu gamni slepptu er þetta mjög forvitnilegt... maður hefði viljað lesa miklu meira um rannsóknina. Asnalegi moggi að linka ekki á neitt ítarefni.
Ætli það sé t.d. hægt að draga þá ályktun af þessu að kvalalosta megi í e-m tilfellum rekja til "óvenjulegs" taugakerfis? Hvað nákvæmlega greinir á milli?
Og hversu bókstaflega á maður að taka fyrirsögn fréttarinnar? Þekkir taugakerfið mitt konuna mína? Það kæmi mér sosum ekkert á óvart... en ætli það sé þá hægt að búa til framhjáhaldsmæli, sem mælir hvort taugakerfi einstaklings sé stillt inn á fleiri en einn maka? ;-)