|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
En það er ekkert nýtt og er ekki það sem ég vildi koma á framfæri. Því miður hefur nokkuð borið á því að fólk er að lesa voða mikið - of mikið - út úr þessum skrifum mínum. Þetta eru hinsvegar bara mínar meiningar - byggðar á reynslu minni af öllum þeim samböndum sem ég hef verið í og þeim samböndum sem ég hef haft vitneskju um - ekki bara sambandi okkar Unnar.
Þeir sem þekkja mig vita að ég er líka forfallinn áhugamaður um kynlíf og sambönd og hef lesið mig mjög mikið til um allt sem því tengist - mér til skemmtunar. Það sem ég skrifaði þarna byggðist á þessu öllu saman - en með réttu (ómerkilegu) hugarfari mátti (ranglega) lesa út úr þessu allskonar vandamál eða smáatriði um sambandið okkar Unnar. Sem fólk auðvitað gerir. Okkur Unni finnst það ekkert skemmtilegt.
Það voru auðvitað mín mistök fyrir að birta þetta undir nafni, í staðinn fyrir að nýta nafnleyndina. Mér þykir það leitt og mun hugsa mig þrisvar um áður en ég geri það aftur. Nafnleynd skal það vera hjá Dr. Bjarna Love, héðan í frá...
Þeir sem vilja lesa ráðleggingar Dr. Bjarna Love í réttu samhengi geta kíkt á þessa færslu úr dagbókinni. Kannski gagnast þær einhverjum - á sínum tíma virtist fólkið á persona.is allavegna fíla innleggin mín, áður en ég gafst upp á að hanga þar.
Geir, þú ert leiðinlegur asni. Farðu eitthvert.
Uppfært 17.12.2001: Annar misskilningur leiðréttur: textinn sem kom öllu "gríninu" af stað er enn á vefnum og hefur verið allan tímann, sbr. færsluna sem ég vísa í hér f. ofan. Ég færði textann bara til, til að brjóta vísanir Geirs og (reyna að) skemma brandarann fyrir honum.
Comments are closed.