|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst færslan hans í meira lagi einkennileg, af því að ég sat með honum um daginn og útskýrði nákvæmlega af hverju ég væri að þessu. Fyrir mig. Til að ég geti skrifað stöff í dagbókina mína sem ég vil ekki sýna öllum, en vil alveg endilega skrifa og varðveita með öðrum pælingum mínum. Leyndarmálin mín eru ekki það mörg eða merkileg að ég nenni að halda aðra, aðskilda dagbók - ég hef reynt og það hefur ekki gengið. Það væri líka asnalegt og myndi torvelda aðgengi míns sjálfs að eigin pælingum mjög mikið. Mér finnst hinsvegar gaman að forrita og fannst kjörin skemmtun að útvíkka dagbókina mína til að geta uppfyllt þessar þarfir mínar líka, á einum stað, með einu viðmóti.
Ég er heldur ekkert einn með þessar þarfir - það er mjög stutt síðan vefleiðararnir voru margir í kór að velta fyrir sér kosti og galla þess að alheimur gæti lesið persónulegar meiningar þeirra - meiningar sem þeir vildu samt setja á blað og tjá. Sumum fannst þetta orðið svo óþægilegt að þeir voru að íhuga að hætta bara að "blogga" eða stofna nýtt blogg undir dulnefni. Mér finnst lausnin mín miklu betri.
Það er kannski miður ef þetta passar ekki inn í fyrirframmótaðar hugmyndir Más um til hvers vefdagbækur eru og hvernig þær eiga að virka... en mér finnst mjög þröngsýnt af honum að kalla það bjánalegt.
Þegar ég er kominn aðeins lengra með að prófa og þróa þetta kerfi mun ég reyna að bjóða öðrum á Klaka að nota það. Hvort menn gera það eða ekki er auðvitað algjörlega þeirra mál.