Óli Jens, ég á afrit af dómnum og get sent þér hann ef ég fæ hjá þér e-mailinn. Í dómssjkjölunum eru öll málsatvik rakin, skýrslurnar sem teknar voru af öllum málsaðilum og vitnum. Yfirheyrslan í dómssal og svo dómsord. Ég trúi ekki að þú verðir sömu skoðunnar eftir lestur dómsins. Ég missti algerlega fótana þegar ég las dóminn. Ég þakkaði Guði fyrir að vera ekki í sambúð því fyrir mér er búið að gefa karmönnum í sambúð veiðileifi á sambýliskonur sínar. Ég grét þegar ég las viðhorf þitt og upptalningar á hugsanlegum afsökunum manninum til handa. OFBELDI ER ALLDREI AFSAKANLEGT. ÞAÐ ER BARA EIN UNDANTEKNING A ÞVI - AÐEINS EIN: SJALFSVORN. Líffræðilega er það nú oftast svo að karlinn er líkamlega sterkari en konan og því hefur hún engin tök á að verja sig, hún er fyrirfram undir í þeirri orustu. Það er greinilegt að þú hefur alldrei þurft að búa við þá ógn. Það er heldur ekki einhlýtt að karlar leggi hendur á konur ég veit um að kona hafi misþyrmt manni sínum, hún gat það því hann ákvað að taka ekki á móti, vissi sem var að það var ójafn leikur.
Og svo annað hálstak er stórhættulegt ofbeldi. Ég er læknir og er yfirmig hneyksluð á því að læknirinn sem bar vitni var aldrei spurður álits á alvarleika áverkanna, bara hverjir þeir væru. Ólæknislærður dómari er ekki hæfur til að draga ályktanir af bara einum hluta sjúkraskýslunnar. Hálstak er kyrking. Það sem gerist er ekki að barkinn leggist saman og manneskjan hætti að anda, það gerist við hengingu hinsvegar. Það sem gerist við hálstak er slagæðarnar sem bera súrefni til heilans lokast og manneskjan missir meðvitund. Ef hálstakinu linnir ekki við það líður ekki nema stutt stund þar til heilinn verður fyrir varanlegum skaða og manneskjan verður grænkál til ævi loka sem verða skömmu síðar ef hálstakinu linnir ekki. Það er allveg týpískt að leikmenn finnist áverkarnir ekki miklir bara af því að engin bein voru brotin og ekkert blóð sást. Komon ansi hreint naivt- eins og barn sem fer að hágráta af því að það sást blóð. Flest sár sem blæða gróa sem og bein sem brotna. Ofbeldi sem er ógnun við líf og sjálfræði (sá réttur manna að ákveða sjálfur hvað gert er við eigin líkama) er graf alvarlegt mannréttindabrot. Ef út í það er farið er allt ofbeldi mannréttindabrot og brjóstumkennanlegt að menn afsaki það. Guð hjálpi þér Óli Jens.
Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re..
(Óli Jens)
mér sýnist
(JBJ)
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]