|
The following messages are replies to
a previous message.
|
|
Óli, þetta þarna er nákvæmlega skilaboðið sem dómurinn er að senda! Það er vandamálið! Skilurðu það virkilega ekki?
Það er nákvæmlega þessvegna sem ég, og fleiri, teljum ástæðu til að tjá okkur og láta það heyrast að samfélaginu, okkur, sé ekki sama og við gefum ekkert slíkt leyfi.
Ég er ekkert viss um að maðurinn hefði átt að fá einhvern þyngri dóm. Ég er ekki að segja það, ég þekki aðstæður ekki nógu vel til að fullyrða slíkt. Ég ætla heldur ekki heim til dómarans að lemja hann.
Þegar ég "hvatti til þess", þá var það kaldhæðni sem ég veit alveg að lesendur mínir eru nógu gáfaðir til að skilja sem slíkt. Dómaranum var hinsvegar alvara.
Rök dómarans fyrir mildum dómi, eins og þau koma fram í fjölmiðlum, eru ömurleg, fyrirlitleg og fyrir neðan allar hellur. Þau senda það skilaboð að það sé allt í lagi að lemja konuna sína ef maður heldur að hún hafi haldið fram hjá sér eða á annan hátt reitt mann til reiði. Það er bara fáránlegt og dómari sem lætur svona út úr sér er ekki starfi sínu vaxinn.
Ég er eiginlega mjög hissa á þér að vera eitthvað að reyna að afsaka þennan dómara - og ofbeldismanninn eins og þú gerðir í fyrra innleggi. Það er gott og blessað að hafa skilning og samúð með fólki, en stundum verður maður samt að draga línu og segja að ákveðin hegðun sé óásættanleg og óafsakanleg.
Heimilisofbeldi á klárlega að vera handan þeirrar línu, en dómarinn virðist halda öðru fram. Mér finnst það fyrirlitlegt.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]