[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Fjölmiðlafrumvarp (Már Örlygsson)

2004-04-26 22:40

Staðan áður var sú að Morgunblaðið var í algjörri yfirburðastöðu á dagblaðamarkaðnum og var í eigu aðila með náin tengsl við afar öfluga valdaklíku í viðskiptalífinu - nákvæmlega sömu tengslin og Sjálfstæðisflokkurinn hefur/hafði.

Í dag hafa valdahlutföllin á fjölmiðlamarkaðnum lítið breyst nema að þau hafa aðallega flust til - úr höndum Sjálfsstæðisflokksins og einkavina hans yfir til nýrrar kynslóðar valdamanna, og þá verða svona hlutir allt í einu að voða stóru vandamáli sem þarf að bregðast við.

Þetta er kjaftæði.

P.S. Ég spyr mig enn og aftur, hvernig ætla þeir að skilgreina hvað er "fjölmiðill/fjölmiðlafyrirtæki" og hvað ekki?


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni