[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Fjölmiðlafrumvarp (Már Örlygsson)

2004-04-26 14:00

Við erum með samkeppnislög. Þau ná líka til fjölmiðla.

Þarf sérstök lög um fjölmiðla? Hvernig skilgreinum við fjölmiðla?

Er Hagkaupsbæklingurinn fjölmiðill? Ef nei, af hverju ekki? Hvað með "Dagskrá vikunnar"?

Geta vefsvæði talist til fjölmiðla? Er Femin.is fjölmiðill? En Einkamál.is? En Símakskrá.is? En Sjonvarp.is? En Hagkaup.is?

     Re: Re: Fjölmiðlafrumvarp (Már Örlygsson)
         Re: Re: Re: Fjölmiðlafrumvarp (Svansson)
     Re: Re: Fjölmiðlafrumvarp (Bjarni Rúnar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fjölmiðlafrumvarp (Jósi)

2004-04-26 14:28
Þó að ég sé sammála ríkisstjórninni um að núverandi ástand sé ekki nógu gott þá er það samt ekki sniðugt að samin séu lög sem beinlínis ná bara yfir eitt fyrirtæki. Þó að það fyrirtæki sé algjört skrímsli, þá er ég ekki sammála svona sértækum aðgerðum. Það mætti stytta þetta frumvarp niður í eftirfarandi setningu: "Jón Ásgeir Jóhannesson má ekki eiga fjölmiðla". Í Fréttablaðinu (!) í dag er á bls. 10 ágætis grein sem sýnir tvískinnunginn hjá Davíð. Bara þeir sem eru ekki með honum í liði fá svona lög yfir sig.
     Re: Re: Fjölmiðlafrumvarp (Bjarni Rúnar)
         Re: Re: Re: Fjölmiðlafrumvarp (Anonymous)
             Re: Re: Re: Re: Fjölmiðlaf.. (Bjarni Rúnar)
                 Re: Fjölmiðlafrumvarp (Már Örlygsson)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Bah! (Sindri)

2004-04-26 14:48
Fussusvei! Ég finn talsverða lykt af því að þessi lög séu að verða til afþví þeir sem þau eru líklegust til að hafa áhrif á á næstunni eru pólitískir andstæðingar Dabba og co. Ég efast um að núverandi ríkistjórn væri að standa í þessu ef málin stæðu ekki þannig núna. PS. Lögin eru gott mál, þessi skítalykt pirrar mig bara.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fjölmiðlafrumvarp (Heiða)

2004-04-26 19:12
Tjah þeim finnst samt allt í lagi að ríkið sjálft eigi fjölmiðla...og þó er það í afgerandi markaðsráðandi stöðu í ríkisbransanum... :S Að gamni slepptu þá er það sem mér finnst athugavert við þetta nr. 1, 2 og 3 að það sé verið að undirbúa frumvarp, sem má teljast vafasamt að mörgu leyti (hvort sem aðgerða er þörf eða ekki þá eru meðölin misjöfn), um slíkt grundvallaratriði í meintu lýðræðisfyrirkomulagi og fjölmiðlarnir eru, svona skömmu fyrir þinglok. Mér finnst skítalykt af þessu. Þrjár klemmur alveg á nefinu.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fjölmiðlafrumvarp (Hrafnkell)

2004-04-26 19:47
Fyrst sjálfstæðismönnum finnst svona mikilvægt að allir viti hver á hvaða fjölmiðil af hverju finnst þeim ekki mikilvægt að við vitum hverjir borga í sjóði stjórnmálaflokkanna?


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni