[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Það er gaman að eldast! (Skrimslan)

2004-01-26 00:05
Jebbs, held þú hljótir að vera í afneitun! ;) En það er svosem líka eina vitið....annars hefur maður það ekki af! Kveðja frá "gömlu konunni"


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Það er gaman að eldast! (Ágúst)

2004-01-26 01:21
Ég held einhvern veginn að maður verði einmitt "fullorðinn" þegar maður kemst að því hvað það er yndislegt að eldast. Sumir öðlast þetta í framhaldsskóla, aðrir seint og um síðir.

Það er svo þegar maður uppgötvar hvað maður veit sáralítið og í sjálfu sér ekkert með vissu, þá fyrst er maður farinn að vita eitthvað í sinn haus. Þetta kemur yfirleitt með þrítugsaldrinum.

Hvað kemur svo veit ég ekki en ég bíð spenntur, eða kannski frekar forvitinn, og það er einmitt bjútíið við þetta allt saman.

Annars á ég í vandamáli að þurfa sífellt að minna sjálfan mig á hvað ég er fáránlega ungur. Ég á eftir að fatta að maður þarf ekki að ljúka öllu fyrir þrítugt.

Kannski það sé næsta þroskastig (hjá mér) :)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Það er gaman að eldast! (Stebbu)

2004-01-26 22:11
Ætti það ekki frekar að vera æskudýrkun "smæskudýrkun"?


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Það er gaman að eldast! (Siggi Palli)

2004-01-28 13:36
Jamm, þetta með æskudýrkun... ég sé aðalega eftir því sem ég gerið ekki sem krakki. Ég held að það sé málið hjá flestum.
Allavega hjá þeim sem ég þekki, ég dauð sé eftir því að hafa ekki verið meiri djammari og komið því úr kerfinu´í staðinn er ég alltaf að halda ýkt í mér að fara ekki á skrallandi fyllerí
:-) hehehhe. Well kannski er það bara ég og enginn annar sem hugsar svona who knows.


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Það er gaman að eldast! (Jósi)

2004-01-29 00:52
Mér finnst alveg ferlegt að eldast. Ég reyni samt að vera sáttur. Mér finnst líka allir sem eru yngri ég vera smábörn, þó að viðkomandi séu komnir á aldur sem mér fannst vera "gamall og vitur" á sínum tíma. Svo að: Þeir sem eru yngri en ég = Busar, smákrakkar sem ekkert vita Þeir sem eru eldri en ég = eldgamalt fólk, sem skilur ekkert Ég = Passlegur aldur, nógu gamall til að vera vitur, nógu ungur til að vera cool.


Up ]   [ Permanent URL ]

Nýtt í dagbókinni