[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Að vita eitthvað (Anonymous)

2003-12-31 00:42

[Matti Á:] "Gerir þú engan greinarmun á þessháttar trú og trú á yfirnáttúruleg fyrirbæri?"

Ja, hvað er yfirnáttúrulegt fyrirbæri? Eitthvað sem maður hefur aldrei séð en verið sagt að sé til? Eitthvað sem tiltölulega fáir hafa upplifað beint en margir telja sig fullvissa um tilvist þess?

Ég hef aldrei séð Alþjóðlegu geimstöðina með berum augum og það hafa fæstir séð hana. Hún er samt sögð til og það eru nokkir sem segjast hafa séð hana og jafnvel snert hana. Þótt ég hafi ekki séð hana þá trúi ég því að hún sé til.

Ég get ekki séð að það geti verið mikill munur á "þessháttar trú og trú á yfirnáttúruleg fyrirbæri". Auk þess hefur þetta oft blandast, t.d. þegar rifist var um hvort að jörðin snerist um sólina eða öfugt.

/e

     : Að vita eitthvað (Matti Á.)
         Re: : Að vita eitthvað (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: : Að vita eitthvað (Már Örlygsson)
             Re: Re: : Að vita eitthvað (Matti Á.)
             Re: Re: : Að vita eitthvað (Finnbogi)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni