[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Að vita eitthvað (Matti Á.)

2003-12-31 00:25

"Þessi niðurstaða byggir líka á því að þú trúir að heimurinn sé rökréttur og rök geti leitt til niðurstöðu."

Hér er hann kominn, kjarni málsins. Þessu trúi ég.

Til að sanna að eitthvað sé ekki til þarftu annaðhvort að sýna fram á að tilvist þess leiði til mótsagnar

Þetta er einmitt sú aðferð sem oftast hefur verið notuð til að sýna fram á tilvistarleysi Guðs/Guða. En reyndar gerið þið félagarnir of mikið úr þeim hluta trúleysis sem fullyrðir um tilveruleysi Guðs/Guða, en það er önnur umræða. Einnig vantar í þessa pælingu spurninguna um það hvar sönnunarbyrðin liggur, en hún liggur að sjálfsögðu hjá þeim sem fullyrðir eitthvað, í þessu tilviki að til séu fljúgandi bleikir fílar.

"Það er alveg hægt að vita hitt og þetta, en flest sem við teljum okkur "vita" er eitthvað sem við trúum bara af því að okkur var sagt það."

Gerir þú engan greinarmun á þessháttar trú og trú á yfirnáttúruleg fyrirbæri?

     Re: Re: Að vita eitthvað (Anonymous)
         : Að vita eitthvað (Matti Á.)
             Re: : Að vita eitthvað (Bjarni Rúnar)
                 Re: Re: : Að vita eitthvað (Már Örlygsson)
                 Re: Re: : Að vita eitthvað (Matti Á.)
                 Re: Re: : Að vita eitthvað (Finnbogi)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Að vita eitthvað (Anonymous)

2003-12-31 00:25

Og margt af því sem mannkynið hefur talið sig vita í gegnum tíðina, eins og að jörðin sé flöt eða sólin snúist í kringum jörðina, hefur seinna reynst rangt. Það er örugglega margt sem við "vitum" núna sem fólk á seinna eftir að hlæja að.

/e

P.S. Það má vera að fljúgandi bleikir fýlar séu til, en ég efast um að fljúgandi bleikir fílar séu til, allavega m.v. núverandi vitneskju um líf- og eðlisfræði.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni