"Það að trúa ekki er trú í sjálfu sér."
Ég hef margoft heyrt þessa fullyrðingu í gegnum tíðina. Í öllum tilfellum hafa það þó verið trúaðir einstaklingar (guðstrúar) sem héldu þessu fram.
Ég skal svo sem alveg samþykkja að gallharðir "trúleysingjar" og "rökhyggjunöttarar" ;-) séu allt að því trúaðir á yfirburðaágæti eigin trúleysis - en mér finnst hins vegar full langt gengið að flokka trúleysi einstaklinga eins og mín (sem trúi á engan guð og er almennt skít sama um allt svona trúarstúss) "trú í sjálfu sér".
Þar finnst mér trúarhugtakinu heldur þunnt smurt.