[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Útúrdúr um orðhengilshátt (Bjarni Rúnar)

2003-12-30 03:22
Þessa braut? Það var ekki ég sem linkaði á moðhausagreinina. :-)

Gerirðu þér annars grein fyrir að við erum komnir niður á planið "mín orðabók er betri en þín orðabók"? Mér finnst það soldið fyndið.

En við erum bara að rífast um orð og framsetningu raka - hártoganir eins og hann Birgir moðhausagagnrýnandi lætur fara í taugarnar á sér. Flóknar umræður vilja gjarnan stranda á slíkum hlutum, því tungumálið er ekkert sérlega nákvæmt verkfæri. Ef umræðan hefði byrjað á öðrum stað hefðirðu líklega fengið að kynnast því að ég er sammála þér í ótrúlega mörgum atriðum. Mér finnst bara hvorki nauðsynlegt né ráðlegt að flagga því og reyna að sannfæra fólk.

Mér finnst ekki áhugavert að rökræða um trú eða trúleysi. Ég hef lært nógu mikil vísindi og nógu mikla heimspeki til að trúa því að slikar umræður geti aldrei komist að neinni niðurstöðu. Það er hinsvegar mjög líklegt að fólk særist þegar slíkt er "rökrætt", því trú er mjög persónulegt fyrirbæri. Mér finnst trúleysingjar oft ekki sýna trúuðum nægilega tillitssemi. Það er nefnilega eitt að gagnrýna stofnanir á borð við Þjóðkirkjuna og annað að rakka niður lífsspeki og sannfæringu einhvers.

Mér finnst því yfirleitt gjörsamlega tilgangslaust að rökræða trúarbrögð (eða trúleysi), nema ef til vill til þess að reyna að skilja betur áhrif trúarbragða á samfélög og pólitík eða þjálfa heilasellurnar smá. Þannig var pælingin um trúboðið og hvernig það hefur gegnsýrt vestrænt samfélag hugsuð - mér finnst það áhugaverð pæling, mér þætti gaman að heyra hvað fólki finnst, gaman að vita hvort skilningur minn á þessum hluta Kristninnar sé réttur eða rangur, hvort fólki finnist þessi kenning ganga upp.

Ég sé soldið eftir að hafa ekki bara haldið mig við það, en það er samt svo yndisleg írónía í því að velta upp þeim möguleika að kannski séu sumir trúleysingjar óþarflega uppáþrengjandi einmitt vegna þess að þeir hafa fengið "of Kristilegt" uppeldi að þessu leyti. Mér finnst það bara endalaust fyndin tilhugsun. :-)

     Re: Útúrdúr um orðhengilshátt (Matti Á.)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni