[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
Ég er svo fullkomlega sammála Bjarna núna. Kannski jafnvel meira sammála honum en hann sjálfur. ;-)
Það er fátt leiðinlegra en þrasið og orðhengilshátturinn í sjálfskipuðum frelsishetjum gegn oki trúarbragða. Geta og þolinmæði þeirra til að þvæla út í eitt um hluti sem skipta trúað fólk ekki máli er... öh... ótrúleg?
Við ykkur, herskara trúleysunnar, vil ég segja: Þið eruð svo leiðinlegt fólk að ég gæti grátið.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
Mér finnst þetta mjög athyglisverð kenning hjá þér Bjarni með að hinar kristnu hugmyndir um trúboðið séu áhrifavaldur í hegðun þeirra trúleysingja sem finna sig sífellt knúna að ráðast að trúarsannfæringu annara.
Dáldið svipað og hvernig hægri-frjálshyggjumenn byggja hugmyndir sínar um lífskjör og lífsgæði í "alfrjálsa draumasamfélaginu" á þeirri samfélagsgerð sem við þekkjum í dag og sem varð einungis til fyrir tilstilli "sósíalískra" afla gegn um aldirnar.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
"Matti Á svarar áhugaverðum pælingum Bjarna um trúleysi og trúboð með vangaveltum um afstæðishyggju. Ég veit ekki alveg hver niðurstaðan átti að vera í pistli Matta, en ég veit fyrir víst að mér finnst afstæðishyggja dáldið sniðug. Nokkrar ástæður: ...Lesa meira
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
"[...] þegar ég sé svokallaða "trúleysingja" ráðast með offorsi á málflutning trúaðra [...] eins og maður sér hér og þar á íslenska vefnum."
Athugaðu að íslenskir trúleysingjar eru oftast nær ákveðin tegund trúleysingja, nefnilega "ekki-kristnir". Þeir hafa alast upp við kristni á heimilinu og í (tiltölulega) kristnu samfélagi og finnst því ósköp eðlilegt að stunda "ekki-trúboð" (les: "ekki-kristniboð") eins og trúaðir (les: kristnir) stunda trúboð (les: kristniboð).
Þó svo að ég hafi í sjálfu sér ekki hugmynd um það, þá er mér mjög til efs að hægt sé að yfirfæra hegðan íslenskra trúleysingja yfir á alla trúleysingja.
Að lokum vegna þessa rifrildis um hugtök, þá er ekkert til sem heitir trúleysingi. Það að trúa ekki er trú í sjálfu sér.
/e
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
Á heimasíðu SAMT er örlítil umfjöllun um trúleysi þar sem tilraun er gerð til að útskýra hvað það er.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]