[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Kannan og typpið (Ágúst)

2003-12-14 19:41
Ég man einmitt eftir að hafa velt þvi fyrir mér þegar ég var 4-5 ára hvers vegna "kannan" minnkaði ekkert þegar maður var búinn að tæma hana (pissa).
"Kannan" var semsagt það sem ég áleit vera augljóst hlutverk þessa dóts sem lafði fyrir neðan typpið.
Ég man líka hvað ég varð svekktur þegar ég komst að því að "kenningin" mín stóðst ekki. Ég man líka vandaræðasvipinn sem kom á foreldrana einn morguninn þegar ég sagði þeim frá þessari kenningu minni.

Alveg magnað hvað þessi færsla hans Bjarna er búin að rifja upp margar bernskuminningar hjá manni :)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Kossar í kjallara í Utah (Bjarni Rúnar)

2003-12-14 21:26
Það er reyndar örugglega slatti af fólki sem teldi mig þurfa nauðsynlega á smá endurhæfingu að halda... en hei, mér finnst það ekki!


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni