Þegar við
Stebbi vorum 15 ára þá fengum við okkur
Super Soaker vatnsbyssur. Þegar nýjabrumið var farið af þeim, og við búnir að sjá byrjunina á Lethal Weapon 3 (þar sem tölustafurinn 3 er gerður úr eldi, kúl!) þá fengum við nýja hugmynd.
Við fórum út á bensínstöðina á Ánanaustum, keyptum bensín í brúsa fyrir fimmhundruðkall (sem þýddi ca. 10 lítrar á þeim tíma), fórum í portið á stálsmiðjunni þar við hliðina og fylltum á vatnsbyssurnar. Úr urðu þessar fínu eldvörpur sem við lékum okkur að þar til hlaupin fóru að bráðna.
Þá ákváðum við að nýta hina 9 lítrana af bensíni sem við áttum og helltum því á jörðina og ætluðum að gera smá eldhaf til að hoppa yfir. Stebbi setti sig í stellingar til að hoppa og ég kveikti í. Upp gaus rúmlega tveggja metra hár eldstrókur sem engin leið var að hoppa yfir.
Fljótandi bensínið sem ég kveikti í var ennþá að renna, og rann að stórum hleðsludyrum sem voru á stálsmiðjunni og
rann síðan inn undir þær.
Við tókum auðvitað til fótanna.
ps. Ég stalst til að labba þarna framhjá tveimur tímum síðar. Þar sem allt var úr stáli þarna náði eldurinn sem betur fer ekki að kveikja í stálsmiðjunni...