[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar (Anonymous)

2003-10-13 16:27
Skv. núgildandi lögum (og breytingatillagan sem á að innleiða Sænsku leiðina afnemur ekki þann lið) þá er ólöglegt að hafa milligöngu um vændi annarar manneskju og þiggja fyrir það beinar eða óbeinar greiðslur.

Pimparnir/þrælasalarnir eru í dag og verða áfram lögbrjótar. Lögreglan og yfirvöld hafast lítið sem ekkert að í að koma höndum yfir þessa aðila, og það ástand mun ekkert lagast þó sænska leiðin verði farin. Það eina sem mun breytast verður að nú verða kaupendur vændis líka lögbrjótar, og verkefnum lögreglu mun fjölga enn frekar, og möguleikinn á að kúnnar vændiskvenna geti ljóstrað upp um þrælahaldarana verður úr sögunni.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni