[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar (Bjarni Rúnar)

2003-10-13 13:18
Ég þarf ekki að koma með einhverja algilda lausn til að benda á að lausnartillögur annarra séu meingallaðar. Eitt sem er algjört tabú að minnast á, er að mögulega sé skást að ríkið geri ekki neitt. Eða öllu heldur, geri ekki neitt "sértækt" heldur reyni bara almennt að bæta líðan og kjör fólks og framfylgja gildandi lögum - eins og venjulega. Punktar Más varðandi þverbrotna vinnulöggjöf eiga vel við í þessu samhengi.

Mér finnst að einhver sem ætlar að bæta nýjum lögum, boðum og bönnum við þegar útþanið lagabákn okkar þurfi að réttlæta það mjög vel og sýna fram á að lagasetningin sé líkleg til að bæta ástandið. Það hefur ekki verið gert í þessu tilfelli, heldur hefur mikið verið reynt að hundsa stóran hluta heildarmyndarinnar og gera gagnrýnendur tortryggilega.

Hér er ég að tala um sænsku leiðina, sem felur í sér mun þrengri lagaramma en við búum við í dag. Ég er hinsvegar 100% sammála feministunum um að lögin í dag, sem gera vændi til framfærslu refsivert og auka þannig á neyð kvenna sem neyðast út í þessa starfsemi, séu þjóðinni til háborinnar skammar.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni