[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar (Nonni)

2003-10-12 23:10
Ansi er þetta góður pistill hjá þér þó ókláraður sé. Ég hef alltaf verið mjög mikið á móti mýtunni um hamingjusömu hóruna, því hún hefur verið notuð til að réttlæta svo margt. Aðallega forsjárhyggja hjá mér samt. Mér finnst eins og fólk sé of vitlaust til að draga "réttar" ákvarðanir ef að báðar hliðar málsins koma fram. Sem er náttlega bara helv. hroki. Þess vegna hef ég ekki viljað vita af þessum hamingjusömu hórum.
En málið er að ég er á móti vændi á nákvæmlega sömu forsendum og þú. Ég er á móti vændi þar sem er verið að misnota og/eða arðræna allherfilega vændiskonuna. Arðrán á sér náttúrulega sér stað alls staðar í þjóðfélaginu og lítið við því að gera nema byltingu. En þegar arðrán gengur svona út í algjörar öfgar, með tilheyrandi ofbeldi, þá er það versti viðbjóður í heimi. Sama hvort það er í kynlífskaupa samhengi eða börn að vinna við að sauma fótbolta og skó.
Aftur á móti er ég samt ennþá á því að margt sem fylgir "klámvæðingunni" er notað meðvitað og ómeðvitað til að niðurlægja konur sem heild. Ég hef heyrt sögur um konur sem fóru að vinna á karlavinnustað, þar sem ekki voru allir jafnsáttir við konur í sínu vígi, og stuttu eftir að þær byrjuðu var annað hvort búið að hengja upp verulega gróft plakat, ellegar senda ótrúlegt magn niðrandi karlrembubrandara í tölvupósti eða e-ð álíka. Þannig að það þarf líka að fylgjast með klámvæðingunni með kynjagleraugum. Hún snýst ekki bara um frelsi til að gera það sem maður vill og hefur rétt til að gera, heldur er líka notuð sem kúgunartæki, og þá ekki endilega gegn þeim sem tóku þátt í kláminu.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar (Óli Jens)

2003-10-13 12:38
Er semsagt umrædan opin aftur? :-)
Ef ekki, hættid ad lesa.
Ef umrædan er opin aftur, thá thetta:
Mér sýnist sem ad thú sért sekur um thad sama og thú sakar alla adra um, ad koma med enga algilda lausn. Thú ert pirradur yfir thví ad fólk skuli ekki átta sig á thví ad thad sé til fólk sem finnst gott og gaman ad stunda kynlíf og kannski sýna ödrum thad. Ég held hinsvegar ad fólk skilji thetta almennt. Thad er, fólk veit ad til er hamingjusama hóran. Hinsvegar thá er vid vandamál ad strída og thad vandamál er ofbeldi sem fylgir sumu kynlífi. Thad tharf einhvernvegin ad stoppa.
Ég minnist thess ekki ad thú hafir komid med neina fljótlega lausn til ad leysa thann vanda (gæti misminnt náttúrulega, en efast thad thó :-) ) og lykilordid hérna er fljótlega. Fólk med samvisku vill ekki ad hlutir eins og mannsal vidgangist í dag og thessvegna vill thad ganga á réttindi hamingjusömu hórunnar til ad vernda óhamingjusömu hórurnar (tekur eftir thví ad önnur er í eintölu en hin í fleirtölu, thad er vegna thess ad ég held ad fyrir hverja hamingjusama hóru eru til margar óhamingjusamar hórur). Thetta virdist vera eina adferdin sem vid höfum athugad hingad til og eina adferdin sem meirihluta finnst skynsamlegt ad skyldi virka á fljótlegan hátt.
Thetta thydir ekki ad thad sé ekki til betri leid, vid hofum bara ekki fundid hana ennthá ef hún er thá til á annad bord.
Svona sé ég a.m.k. málid. Rökræda um adrar lausnir eru mjög tharfar en thá tharf ad skilgreina hugtök eins og klám og ofbeldi. Gaman væri ad fá samantekt á theim umrædum á einhvern einn stad.
     Re: Re: Vændi, Sænska leið.. (Bjarni Rúnar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Vændi, Sænska leiðin, gamlar pælingar (Ágúst)

2003-10-13 16:02
Það var mikið til af því að ég komst að því að flestir sem ræða þetta hafa engan áhuga á rökum eða raunveruleikanum - fyrir flesta er þetta siðferðis- og tilfinningaspursmál og umræðurnar eru oft rosalega fljótar að breytast í skítkast.

Gæti verið að ég sé að misskilja þig en mér finnst þetta svo sannarlega vera siðferðisspursmál, ekki spurning. Þess heldur þurfum við að taka á þessu máli öðrum tökum en týpískri hitamál pólitískrar umræðu hérna á borð leikskóla í Grafarvogi og skipulag úthverfa. Vegna þess að þetta er siðferðisspursmál er þetta mikilvæg umræða og þess heldur mikilvægt að ræða hana málefnalega en ekki í skítkasti og sleggjudómum.
Sjálfur hef ég sveiflast aðeins til í þessari umræðu en fæ þó alltaf sömu niðurstöðu hvað það varðar að að stunda vændi skuli ekki vera ólöglegt, ekki frekar en t.d. fíkniefnaneysla. Hvort við viljum svo refsa þeim sem "skipuleggja" vændisstarfsemi eða þeim sem kaupa hana er svo eitthvað sem ég hef sveiflast í afstöðunni til. Ég get hinsvegar ekki séð að það sé samræmi í því að refsa kaupandanum þegar bæði salan og seljandinn eru "í lagi". Þannig yrði, ef skipulagt vændi á að vera ólöglegt, að skilgreina það sérstaklega.

Þegar við viljum setja lög um siðferðisleg álitaefni þurfum við alltaf að sætta okkur við tvennt: a)betra er að ganga of skammt en of langt og b)umræðan verður alltaf lituð skítkasti og sleggjudómum að vissu leyti.

Svo finnst mér að þú ættir að pússa þennan pistil þinn til og klára hann. Veitir ekki af að fá góðan málsvara úr þessari átt, sem búinn er að kynna sér málið í þaula.
Go Bjarni ;)
     Re: Re: Vændi, Sænska leið.. (Anonymous)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni