[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Freistingar netspjallsins (egill)

2003-08-19 17:29
MSN Messenger nýtist mér vel í vinnunni.

Gerir mér kleift að vera í sambandi við fleiri einstaklinga á einum og sama tíma, betur en t.d. sími gerir.

Oft þarf maður að spyrja vinnufélaga sem eru t.d. staddir annarstaðar í bænum, einhverrar lítillar spurningar, og þá sparar MSN manni sporin.  Að ég minnist ekki á sparnaðinn við það að geta náð í fólk hér og þar í heiminum, sem maður hefði annars aldrei náð í.

Ætli það sé ekki eins með netspjall, og allt annað, það er gott í hófi og nýtist vel ef það er rétt notað.  Það er til millivegur, og það góður.  Ég fíla það a.m.k. að geta notað MSN Messenger við vinnuna.

Plús þá er kosturinn við netspjall, að ef manni leiðist viðkomandi, þá er einfaldlega hægt að ýta á takka og slökkva :D Já, og líka ef viðkomandi er ljótur, þá þarf maður ekki... nei smá spaug ;)

Ég er heldur ekki frá því að netspjall sé gott fyrir heilann, maður þjálfast upp í að tala við marga í einu, og þarf oft að hugsa um og leysa úr mörgu á sama tíma.

Nóg komið af bulli frá mér... og takk fyrir síðast (langt síðan og stutt, en laggott)

(HTML lagað - bre)

     Re: Re: Freistingar netspj.. (Anonymous)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Freistingar netspjallsins (Salvör)

2003-08-19 19:40
Sammála. svo tekur þetta kannski ekki neitt mikinn tíma. ég er t.d. bara nokkrar sek. á þínun "svarhala" núna en næ samt að segja mína skoðun. gallinn er ekki að það sé tímafrekt að hafa samskipti við fólk á Netinu... gallinn er meira að maður kynnist svo mörgum og hefur samskipti við svo marga að þess vegna fer mikill tími í þetta. p.s. þetta er eitt að því sem mér finnst flott við blogg. Það eru nokkurs konar fjöldaútsendingar til vína og kunningja og fjölskyldu, léttir af manni heilmiklum tölvupóstskriftum


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Freistingar netspjallsins (Geir)

2003-08-21 09:26
Minesweeper Flags er hins vegar hreinræktað afkvæmi hinnar illu hliðar Kraftsins!


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni